Velkomin(n), óskráður gestur. Vinsamlegast innskráið ykkur eða skráið nýjan þátttakanda.
www.hugmyndaflug.is
02.09.2010 kl. 21:31:02
Fréttir:


Síður: 1
18. október 2006 (Lesið 3255 sinnum)
Ómar Þ. Ragnarsson
Hugmyndaflug ehf.
*****


... bara eitt
sandkorn ..

Innlegg: 27
18. október 2006
18.10.2006 kl. 21:34:13
 
Sunnudagurinn 15. október varð notadrjúgur við gerð myndarinnar um Örkina. Flogið var austur á flugbrautina við Snæfell þar sem Þórir Gíslason var mættur á ofurjeppanum “Hrolli” og við fórum niður á bakka Hálslóns til að draga Örkina á flot.  
 

 
Frábært veður var í þessum dýpsta og skjólsælasta dal norðurhálendisins og siglt um alla kima Hálslóns, sem er orðið næstum 15 kílómetra langt, nær upp meðfram Hraukahjalla og hefur sökkt hluta af Kringilsárrana. Nú var hægt að sigla inn í svonefnda Stuðlagátt upp að ónefndum fossi í Kringilsá, sem hefur verið í sumarham vegna hlýinda og rigninga. Þetta var óviðjafnanleg sigling, stuðlaberg í stíl Þjóðleikhússins á báða bóga og fossinn í botninum.  
 
Einnig var flott stuðlaberg að sökkva rétt fyrir utan Hraukahjalla og margar víkur og vogar við Lindur buðu upp á hafnarstæði. En stutt er þangað til Lindur og hjallarnir allir á hæð við þær ásamt þessum hafnarstæðum sökkva í mun breiðara lón.  
 

 
Eftir siglinguna var Örkin dregin upp að varnargarðsveginum, sem marka á austurströnd Hálslóns og verður þar væntanlega á hvolfi þangað til næsta vor. Þóri er þökkuð hjálpin við þessa ferð sem hefði verið óhugsandi án aðstoðarmanns á borð við hann.  
 

 
Komin var þoka og því varð að skilja flugvélina eftir við Snæfell. Daginn eftir var farið á Súkkujeppanum gamla upp eftir og flugvélin sótt í erfiðri ferð, hríð var og dimmviðri, kominn snjór á flugbrautina og flugvélin öll ísuð. Guðmundur á Vaði fór síðan með mér til að sækja jeppann sem ég hafði skilið eftir og eru honum færðar hinar bestu þakkir fyrir aðstoðina.  
 

 
Í gær (17. október) var síðan flogið frá Egilsstöðum til Reykjavíkur með viðkomu á Hraukahjalla og Sauðármel. Félagar úr Þyt í Mosfellsbæ komu austur á þremur flugvélum og lentu á báðum brautunum. Sandskeiðið er að sökkva og fossinn í Stuðlagátt sömuleiðis. Mikið var um myndatökur í þessari síðustu ferð austur að sinni.  
 
Í síðustu viku var farið með svörtu Toyjotuna frá Sauðármel suður og til stendur að fara með gamla Skódann, árgerð 1984, sem hefur verið á Egilsstaðaflugvelli, til Ystafells þar sem hann verður á safni við hliðina á Skoda Ingimars Eydals. Skodinn er fyrir löngu búinn að borga sig upp, því meðan hans naut við þurfti ekki að taka bílaleigubíla. En nú er svo margt að honum að ekki borgar sig að gera við hann, enda ekki fjármagn til þess.    
 
(20. okt. 2006 kl. 00:36 - Nú er verið er að yfirfæra myndir og munu þær væntanlega verða settar inn í Myndasafnið á vefnum af Ófni. Þetta er svo mikið myndasafn að við erum að byrja að flokka myndirnar og setjum þær inn jafnóðum og þær klárast. Myndirnar hér að ofan eru úr þeirri seríu.)
Efst á síðu
 
« Síðast lagfært: 20.10.2006 kl. 00:36:53 eftir Ófnir Admin »  
Heimasíða   IP-tala skráð
Ófnir Admin
Vefstjórn
*****


vefsíðugerð   sími
861-6351

Innlegg: 14
Re: 18. október 2006
Svar #1 - 20.10.2006 kl. 03:29:27
 
Ég vildi bara endilega láta ykkur vita að þrátt fyrir mikla flokkunarvinnu, tókst að setja inn nokkrar nýjar myndir í myndasafnið sem sjást hér og verður haldið áfram næstu daga og vikur við að birta þessar einstöku myndir sem Ómar hefur tekið þarna.  Margar þær svipmyndir sem þarna munu koma fyrir sjónir, er nýtt landslag, sem breytist fljótt - og hverfur síðan endanlega.
 
Við hvetjum ykkur til að láta vita af þessum myndum og vefnum www.hugmyndaflug.is í leiðinni, því Íslendingar hafa hérna tækifæri til að sjá þá náttúruperlu sem þarna var en er núna komin í vota gröf.  
 
Á einni myndinni, sem ég vona að Ómar lofi mér að birta, sjást vegsummerki um ljótan utanvegaakstur sem nokkrir austfirðingar ástunduðu við bátinn Örkina - en síðan átti að kenna Ómari um þessu spjöll.  
 
Fyrsti hluti seríunnar sem núna fór í myndasafnið sýnir drukknunina á náttúruperlunni á mjög myndrænan hátt.
 
Jafnframt vil ég endilega minna ykkur á að þið getið "svarað" þessum nýjustu fréttum Ómars með því að smella á hnappinn "Svara" hérna fyrir neðan þetta svar.
Efst á síðu
 
 

Vefstjórn umræðuvefsins
------------------------------------------------------------
Ófnir vefsíðugerð - Ofnir WebDesign
Heimasíða Ófnir Admin   IP-tala skráð
Síður: 1