Ómar Þ. Ragnarsson
|
Mánudag 23. október var farið í kvikmynda- og ljósmyndaflug yfir Brennisteinsfjöll en þar er hafið kapphlaup orkufyrirtækja um rannsóknaleyfi vegna virkjanaáforma. Þriðjudaginn 24. október var flogið á TF-FRÚ í kvikmynda- og ljósmyndatökuflug yfir Kárahnjúkasvæðið og lent á Hraukahjalla í Kringilsárrana á leiðinni til Egilsstaða. Nokkur snjór var á köflum á brautinni en Feroza-jeppinn sem þarna er kom í góðar þarfir, þótt ónýtur og verðlaus sé, við að þjappa snjóinn svo að flugtak gekk greiðlega. Lónið er nú farið að vatna yfir ystu brúnir stóra, græna hjallans, sem Lindakofinn stóð áður á. Mjög góðar myndir náðust, enda bjart og land alhvítt. Síðar um daginn var gerð tilraun til þess að komast inn á Lindahjallann á gamla svarta Suzuki-jeppanum en veður var afleitt, skafrenningur og ofankoma og gekk ferðalagið mjög erfiðlega um snævi fylltar lægðir vegarins, sem lagður hefur verið inn Háls. Aðeins náðustu myndir úr nokkurri fjarlægð af nesinu, sem lónið gengur stöðugt á og var áður þessi þekkti hjalli. Í gær, 25. október var gerð önnur tilraun en það fór á sömu leið, enda snjór orðinn meiri í öllum lægðum. Alveg mistókst að ganga yfir lægð sem ekið var yfir í gær, ég sökk upp undir hendur í lausasnjó og var lengi að berjast þar um. Hefði þurft að vera á skíðum eða þrúgum. Er því alveg óvíst um það hve vel muni takast að fylgjast með drekkingu Lindahjallans næstu dægur en það verður samt reynt.
|