Velkomin(n), óskráður gestur. Vinsamlegast innskráið ykkur eða skráið nýjan þátttakanda.
www.hugmyndaflug.is
02.09.2010 kl. 21:30:57
Fréttir:


Síður: 1
5. nóvember 2006 (Lesið 3912 sinnum)
Ómar Þ. Ragnarsson
Hugmyndaflug ehf.
*****


... bara eitt
sandkorn ..

Innlegg: 27
5. nóvember 2006
05.11.2006 kl. 23:05:07
 
Drekkingu heitu lauganna í Lindum er lokið. Komið hefur fram gagnrýni á það nota orðið “drekkingu” um það að láta renna í Hálslón. En með Kárahnjúkavirkjun er drekkt alls um 40 ferkílómetrum af lífríki gróins lands, plöntum og dýralífi. Mér finnst að það eigi að kalla hlutina sínum réttu nöfnum.  
 
Hvað um það, föstudaginn 27. nóvember var farið í flug á FRÚnni yfir Hjalladal og náðust ágætar myndir en flugveður var lélegt á báðum leiðum. Á leiðinni á gamla Suzuki-jeppanum uppeftir lenti ég í slagtogi með sjúkrabílum og lögreglubíl sem kallaðir voru út vegna flugslyss við Kárahnjúka.  
 
Ég lét RUV á Egilsstöðum vita og lagði mig fram um að komast á slysstað og fylgjast með sem fréttamaður, taka myndir og gera frétt ef með þyrfti. Í ljós kom að um mig og mína eigin flugvél var að ræða og er sennilega einsdæmi að fréttamaður hafi verið á þeysireið með björgunarliði á eigin slysstað til þess að bjarga sjálfum sér úr eigin flugvélarflaki! Um misskilning vitna hafði verið að ræða.  
 
Ég tók myndir af Lindahjallanum og neðri lindinni sem var að sökkva og flaug daginn eftir upp eftir, lenti á Hálsinum og fór aftur að lindinni, en þá var hún sokkin. Flaug síðan til Akureyrar og skildi FRÚNa eftir þar. Mánudaginn 30. október var aftur farið með flugfélaginu austur og ekið upp að efri lindinni til þess að fylgjast með drekkingu hennar, - raunar vakað yfir henni heila nótt.  
 
Síðan farið aftur suður en Hjalti Stefánsson tók að sér að fylgjast með endalokum lindarinnar og lauk því endanlega í gær, 4. nóvember. Stefnt er að því sýna ljósmyndir af þessu basli við fyrsta tækifæri.
Efst á síðu
 
 
Heimasíða   IP-tala skráð
Ófnir Admin
Vefstjórn
*****


vefsíðugerð   sími
861-6351

Innlegg: 14
Myndir af drekkingu heitu lauganna í Lindum
Svar #1 - 07.11.2006 kl. 01:36:45
 
Heiður Ósk Helgadóttir sendi okkur þessar myndir sem þau Heiður Ósk og Hjalti Stefánsson tóku af drekkingu heitu lauganna í Lindum. Við þökkum þeim kærlega fyrir sendinguna.
 

 
Efst á síðu
 
 

Vefstjórn umræðuvefsins
------------------------------------------------------------
Ófnir vefsíðugerð - Ofnir WebDesign
Heimasíða Ófnir Admin   IP-tala skráð
Síður: 1