Velkomin(n), óskráður gestur. Vinsamlegast innskráið ykkur eða skráið nýjan þátttakanda.
www.hugmyndaflug.is
02.09.2010 kl. 21:30:53
Fréttir:


Síður: 1
29. desember 2006 (Lesið 3012 sinnum)
Ómar Þ. Ragnarsson
Hugmyndaflug ehf.
*****


... bara eitt
sandkorn ..

Innlegg: 27
29. desember 2006
30.12.2006 kl. 22:51:38
 
Í gær var flogið á TF-TAL frá Reykjavík og lent á Hraukahjalla í Kringilsárrana. (Sjá myndir á vefsíðunni)  
 
Með í ferð voru hjónin Sigurður Grímsson og Angelíka, en þau tóku þarna kvikmyndir bæði fyrir þýska sjónvarpið og Hugmyndaflug ehf. Hálendið norðan Vatnajökuls er að mestu leyti autt og einkum var áberandi hvað sá hluti lónstæðis Hálslóns, sem eftir á að sökkva, var snjóléttur,  -  enn ein vísbendingin um það hvers vegna það svæði hefur verið mikilvægasta burðarsvæði hreindýranna á vorin.  
 
Heita má fólksbílafært frá byggð og alla leið inn að Brúarjökli en ekki gafst tími til að sannreyna það. Flugbrautin á Hraukahjalla var hörð eins og malbik og ís hafði fyllt upp í tvær lægðir á miðri braut. Birtutíminn var afar stuttur og vegna þess að hvergi markaði í var hægt að nota Feroza-jeppadrusluna til þess að flýta fyrir ferð um hjallann. Þrepafoss, sem Geir Haarde gaf nafn, “ er enn ósnortinn og sömuleiðis hið fallega gljúfur fyrir neðan hann, en “neðri hæð” Hraukahjalla var í þann veginn að sökkva. Ef veturinn heldur áfram að vera svona snjóléttur þarna og hlýnun andrúmslofts heldur áfram er augljós að mínum dómi að menn ætla sér að hafa Hálslón mun stærra en þörf er á og þeir þurftu ekki að hafa stiflurnar svona stórar og háar.  
 
Þetta á eftir að koma mönnum í koll ef menn fylla lónið upp í efstu mörk því að það væri hægt að minnka uppfokssvæðið í Lónstæðinu um minnst 10 ferkílómetra ef menn færu skemmra upp með lónið. Ef það kallar á gerð annars varnargarðs neðar í Hálsinum held ég að það væri vel þess virði miðað við ávinninginn af því að minnka þetta uppblásturs- og sandfokssvæði.  
 
Á leið til baka til Reykjavíkur hamlaði myrkur og slæmt skyggni flugi í lokin svo að lent var á Selfossi og daginn eftir fórum við Helga austur og sóttum hana.  
 
Við hjónin óskum lesendum vefsíðunnar gleðilegs nýs árs og þökkum fyrir ómetanlegan stuðning og samhug á liðnu ári.
Efst á síðu
 
« Síðast lagfært: 31.12.2006 kl. 00:38:33 eftir Ófnir Admin »  
Heimasíða   IP-tala skráð
Síður: 1