Velkomin í vefheima Ófnis

Ófnir vefsíðugerð, sem starfað hefur óslitið síðan 1995, hættir starfsemi sinni frá og með 31. júlí 2009.

Ófnir hefur hannað vefsíður fyrir fyrirtæki, samtök og einstaklinga og notið þess að fá að kynnast frábæru fólki á hinum ýmsu sviðum mannlífsins þennan tíma. En núna er komið að leiðarlokum, því vegna alvarlegra veikinda, sem fara bara versnandi, treysti ég mér ekki til þess að halda þessari starfsemi áfram.

logo.gifÓfnir hefur verið elsta vefsíðugerð landsins um árabil, því hinir stóru höfðu ávallt verðsett sig út af markaðnum. En núna mun eitthvert ungt fyrirtæki fá tækifæri til að státa sig af því að vera elst á markaðnum ;)

Með þakklæti og virðingu fyrir samstarfið á þessum tíma,

Guðmundur Jónsson